Möguleikar
Páfinn seigur! Ég vona að hann hafi næstu viku af líka. Það er kominn pottur hérna í Ebertystrasse og kassi af bjór undir. Ég mun eiga þann kassa óskiptann ef hann gengur á fund skapara síns í þarnæstu viku. Svo er bara að leggjast á bæn.
Annars er ekkert títt. Ég lifi bókalífi um þessar mundir og hef oft lesið hressari bókmenntir undir minni þrýstingi, en þetta tilheyrir víst allt. Einum kennara fannst það bara sjálfsagðasti hlutur að ég tæki sama próf og þýsku nemendurnir í sama kúrsi. Ég spurði hann hvort hann væri eitthvað verri, hvort hann væri að bjóða mér upp í knýttan skottís og hvort honum þætti ekki óspennandi að fara inní helgina með innvortis blæðingar. Nei, nei. Ég hótaði honum að tala við alþjóðaskrifstofuna í skólanum og vísaði í ýmsa mannréttindasáttmála. Nei, nei. Ég spurði bara hvar ég ætti að mæta. Nei, nei. Ég spurði bara hvenær ég ætti að mæta. Ég er því að fara í þriggja tíma skriflegt próf á þriðjudaginn, en veit ekki alveg hvar. Ef ég næ þessu prófi þá finnst mér ekkert ólíklegt að við P.J. Harvey göngum í það heilaga með sumrinu.
Þá er allt mögulegt.

6 Comments:
Já, þetta er kyngimagnað. Var einmitt að hlusta á P.J. Harvey áðan. Lagið is this love kemur svo fallega inn svo við tölum nú ekki um hinn melakólíska sálm this mess we are in-ásamt Thom Yorke, bróður Dwight.
Eru Thom og Dwight bræður?
ef þú varst búinn að gleyma....íslenskt vatn ER best!!! Eigum við að taka smá með til baka til þín?
This comment has been removed by a blog administrator.

Bendi þér á að lesa leyniræðuna af 12. flokksþinginu á nemendu.ru.is/dadih
En þó er mikilvægt að hafa í huga að:
Kriminell er kynvilla,
konur að serða áhætta.
En það að gilja greip sína,
geysmikil fúlmennska.
Leður í umslagi.
Sendu inn athugasemd
<< Home