Allt í þessu fína frá Kína?
Ég verð víst seint vændur um að vera afkastamikill í skýrslugerðinni, en finn enga knýjandi þörf hjá mér til að vera með of mikið kjaftæði um ekkert hérna. Ég er búinn í prófunum og þau gengu prýðilega, en ég á eftir stærðarinnar ritgerð sem ég virðist ófær um að byrja á. Nú er ég hálfveikur, kominn með einhvers konar síverðandi flensu sem virðist vera að leika sér að því að leyfa mér að hafa fótaferð og kemur aldrei alveg heldur spilar út einu svitakasti hér og nokkrum beinverkjum þar. Hún tók samt ögrun minni frá því á sunnudaginn ekki þegjandi og hljóðalaust og sótti aðeins í sig veðrið í kjölfar hennar.
Þessi ögrun var knattspyrnuleikurinn Þýskaland gegn Heiminum sem fram fór í almenningsgarði hér í hverfinu. Ég lék illa fyrir kallaður stöðuna líberó fyrir Heiminn og hafði mér til fulltingis Tyrkja og Japana. Þýskaland stillti upp leikmönnum úr þremur sambandslöndum. Framherji Þýskalands hafði mikið stært sig af knattfimari dögum sínum í mín vantrúuðu eyru, þegar hann lék í framlínunni við hlið Sebastian Schweinsteiger. Sebastian þessi lagði Werder Bremen að velli með félögum sínum í Bayern München á laugardaginn og úrslitin úr þeim leik urðu til þess að varnarmaður Þýskalands þennan sunnudaginn varð að þrífa klósettið í íbúð framherjans, en það er önnur saga. Eitthvað hafði fótamenntin minnkað hjá Bæverjanum frá því að þeir Sebastian lögðu upp fyrir hvorn annan. Engu að síður skoraði hann helminginn af mörkum Þýskalands og það þrátt fyrir að vera undir áhrifum sljóvgandi lyfja. Samskiptaörðuleikum, lítillli leikæfingu og afleitum skóbúnaði var kennt um það að Heimurinn varð að lúta í gras – eða réttara sagt svell. Lokastaða 20 -16. Gary Lineker fór nærri kjarnanum þegar hann sagði að knattspyrna væri leikur sem væri spilaður af 22 mönnum í tveimur 45 mínútna hálfleikjum og endaði ávallt með sigri Þýskalands. Ég segi nú ekki að ég hafi náð að standa undir væntingunum sem til mín voru gerðar komandi af sama róló og hinir goðsagnakenndu Sigguvinssen og Jolly Sverris, en ég fullyrði að ég hefði komist í liðið fyrir Essómótið ef Bjössi Bjartmars hefði séð mig trixa þetta. Japaninn var útum allan völl með æðiber í rassinum og Tyrkinn var mikið í því að klippa menn niður aftanfrá við mikinn fögnuð okkar samherjanna og mikið væl úr herbúðum Þýskalands. Vælið var kveðið niður með því að uppnefna Þjóðverjana Andy Möller, sem þeir kunnu hreint ekki við, enda er Andy einhver lappalengsta veimiltíta sem komist hefur í atvinnumennsku í fótbolta – Ítalir meðtaldir. Í útliti og háttum svipaði honum mjög til Harðar ,,Skinku” Magnússonar Bollusonar, FH-ingi, og eins og gefur að skilja leyfðu Þjóðverjarnir okkur frekar að tækla aðeins nær rauða spjaldinu, en að sitja undir slíkri frýju, sem það er að vera talinn Möller á heimavelli.
Líklega hefur flensunni síverðandi þótt sem ég væri að skella á hana Möllersstimpli með því að striplast þetta fáklæddur á joggingskóm og er nú aðeins farin að standa undir nafni.
Svo ég greini orsakir hennar aðeins betur þá vil ég meina að þær séu tvíþættar.
Önnur er sú að djöfulsins veðurfarið hérna ekki mönnum bjóðandi um þessar mundir. Mér finnst bara bjánalegt að klæða mig eins og ég sé á leiðinni í Bláfjöllin þegar ég bý í stórborg á meginlandi Evrópu. Það er viðvarandi gluggaveður hérna. Það er vandamálið. Maður freistast til að skilja ullina eftir í fataskápnum af því að göturnar eru auðar og sólarglæta á lofti. Svo situr maður nokkrum tímum síðar talandi við tærnar á sér og með læki rennandi úr nösunum. Það sýnir líka hvað veðurfræðin er ömurleg fræðigrein og stutt á veg komin, að það skuli snjóa hér (sem gerist iðulega) þar sem eru 500 kílómetrar í næsta fjall. Snjór hefur ekkert gildi í sjálfum sér. Hann á að vera í fjöllum.
Hin ástæðan fyrir veikindunum er vafalítið stutt heimsókn Bergs Ebba í síðustu viku, en við tókum hlutverk okkar sem Íslendingar í útlöndum mjög föstum tökum. Bergur mætti með þýskan félaga sinn með sér, sem hann hafði reynt að kenna nokkra góða frasa á íslensku. Það er mjög fyndið þegar bláókunnugur útlendingur segir við mann; ,,Hvað er að frétta af systur þinni?” og ,,Mig vantar seðla félagi. Svona hundrað þús´ kall, fyrir klukkan fjögur. Er það ekki í fína frá Kína? Hélt það!”
Hvað sem orsökunum líður er þessi flensa aumingi með hor og ef hún kemur ekki á morgun og lætur mig síðan í friði þá ætla ég að kaupa mér kvartbuxur og labba á þeim í næstu ísbúð. Nóg í bili.

4 Comments:
Skál fyrir þér félagi!
mæli með ís.
held að Bergur þessi sé frændi minn, hef það á tilfinningunni. já er nokkuð viss um það. bið að heilsa honum.
og góðan bata..
sun
Ussumbía!
Hvað er annars að frétta af henni systur þinni?
Sendu inn athugasemd
<< Home