mánudagur, apríl 18, 2005

Gunni brann dálítið á öxlunum þegar við vorum í vatnsrennibrautagarðinum og þurfti að vera með kælipoka í jeppasafaríinu

Ég held að það sé bráðnauðsynlegt að ég hendi einhverju hingað inn. Á morgun held ég til Parísar, þaðan til Barcelona og San Sebastian. Samtals gerir þetta tveggja vikna fjarveru á nýhafinni önn. Hvaða, hvaða. Það gerist aldrei neitt í fyrstu tímunum – er það nokkuð? Ég fór í nokkra tíma í síðustu viku og mér líst vel á þetta. Ætla að taka kúrsa í þremur skólum og verð því mikið á fartinni.
Gerðist meira að segja svo djarfur að fara til Potsdam til að tékka á stemningunni. Sat þetta klukkustund í lest, korter í rútu og vafraði um kampusinn í hálftíma, áður en ég fann bygginguna og stofuna sem ég vildi. Allt til þess eins að komast að því að stafsetningarvilla væri í námskeiðslýsingunni sem send var á alla aðra háskóla og tíminn nýafstaðinn í sömu stofu. Ég lúðraðist því tilbaka yfir hálft Þýskaland.
Nú beini ég orðum mínum til þess sem ábyrgð bar á þessari stafsetningarvillu:
,,Ég vona að þú sért ánægð/ur með þig. Ég vona að þetta hafi verið gott spjall sem þú áttir yfir kaffibollanum, þegar þú vélritaðir 17.15 í staðinn fyrir 15.15. Ég vona að það reynist þér jafnauðvelt að útskýra það fyrir rektor, þegar hann kallar þig á teppið og spyr hverju sæti, að ég verði ekki skráður í nein námskeið við Háskólann í Potsdam, hvorki á þessari önn né ókomnum.”

Annars finnst mér líka vera kominn tími á eitt póstkort til Íslands af gamla skólanum, svona eins og staðlaða formið var á öllum póstkortum, sem send voru frá suðlægari slóðum allt frá fyrstu Mallorcaflugunum ef ekki fyrr;
1. Sól
2. Celciusgráður
3. ½ lítri af bjór kostar
4. Gunni brann dálítið á öxlunum þegar við vorum í vatnsrennibrautagarðinum og þurfti að vera með kælipoka í jeppasafaríinu, en hann lét það ekki á sig fá og undirbjó skemmtiatriði á kvöldvöku Íslendinganna sama dag.

Ég ætla reyndar bara að uppfylla punkt 2.
Það er ákveðin bjórtegund hérna, sem er í miklum metum hjá öllum sem hafa orðið undir í lífinu; rónum, pönkurum og stúdentum. Hún heitir Sternburger, eða Sterni ef maður vill vera töff. Sterniumbúðirnar eru ekki grafískt meistarastykki og það eru engir gullborðar á þeim sem gefa til kynna að bjórinn hafi unnið til verðlauna á einhverri sýningu í Belgíu. Hann rennur hins vegar nokkuð ljúflega niður og er langódýrastur í búðunum af þeim sem eru drykkjarhæfir. Vegna þess hvað hann er ódýr, virðast sjoppueigendur t.d. samtaka í því að kæla hann ekki, svo menn kaupi frekar eitthvað dýrara. Það er nú bara mín teóría. Kannski græða þeir alveg jafnmikið á honum, veit það ekki. En hvað sem því líður, þá er stórmarkaðurinn Plus búinn að kveikja á því, að í mínu hverfi eru ansi margir undirmálsmenn af fyrrtöldum skólum og eins og maður segir á vesturbæsku, þá hata þeir ekki að skrapa saman 40-50 centum til að fá sér einn volgan Sterni uppúr hádegi. Plus hefur því ca. mánaðarlegan Sterni-dag í verslunum sínum hér. Sá dagur er einmitt í dag og hafa félagar mínir orðið sér úti um bifreið til að geta ferjað fenginn.

Þá kemur loksins punktur 2 í þessu Ibiza-póstkorti:
Eitt kykvendi, altso einn kassi, altso 24 sinnum 0,5 lítrar af englapissi því er Sternburger nefnist, kostar 4 evrur og 50 cent. Ég ligg nú ekki yfir Bloomberg og veit ekki hvað þetta heitir nákvæmlega í íslenskum krónum, en það nær alla vega ekki 400 kalli. Hvað er að frétta?
Nú er langt síðan Anna gaf Einari epli í mínum huga, en mér telst til að þetta sé ekki 20 kall á flöskuna! Berlín er sú borg Þýskalands sem státar af hæsta atvinnuleysinu. Ég myndi ekkert gapa af undrun, ef einhver félagsfræðingur tæki sig til og sýndi fram á fylgni milli þess og lægsta bjórverðsins

6 Comments:

Anonymous Andrés Ingi said...

Þegar bjórinn er svona ódýr heitir það ekki atvinnuleysi heldur atvinnufrelsi. Skál!

11:26 AM  
Anonymous G said...

en.. en... en... puntkur 2 er um Celsiusgráður ekki bjór!! hvaða þvæla er þetta??

8:53 AM  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég get nú sagt þér það að Sternburger er einn þekktasti bjór Þýskalands og þótt víðar væri leitað. Hann er nefndur eftir Itzhak Stern en hann vann víst á einum þekktasta hamborgarastað Berlínar, Judburgers. Sagan segir að nafnið sé til komið vegna þess að yfirmaður hans, Herr Jud öskraði alltaf á hann þegar pöntun kom: "Sterrrrrrrrrrn, Burger!!!!!!!". Sem útleggst á íslensku: "Minn kæri Stern hafðu til borgara þegar þú mátt vera að". Með tíð og tíma varð þetta að Sternburger, en hvernig bjór tengist þessari sögu hef ég ekki hugmynd um.

kv

J. Sus

12:03 AM  
Anonymous Eva said...

jeij! gaman að finna þig á alheimsvefnum ...ef nú er ekki tíminn til að lesa um hjólreiðar og bjór í fjarlægum löndum þá hef ég hrapalega misskilið tilgang próflesturs ;)

11:52 AM  
Anonymous Jódís said...

Eirik, við ætlum að hittast í pollagallafélaginu, ætlar þú ekki að mæta?

10:24 PM  
Anonymous Friðgunnar said...

Kemurðu ekki á tombóluna í grallarafélaginu?

11:47 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home

eXTReMe Tracker